Afmælisútlit Terra
Umhverfisfyrirtækið Terra fagnar fjörtíu ára afmæli á árinu. Það er ótrúlegt að hugsa til þess hvers mikið umhverfisvitund samfélagsins hefur breyst á þessum fjórum áratugum sem liðnir eru frá stofnun fyrirtækisins.

grafísk hönnun
hugmyndavinna
Terra leikur lykilhlutverk í ábyrgari meðferð úrgangs af öllu tagi og hefur sett sér metnaðarfull markmið þegar kemur að sjálfbærni. Afmælisútfærslan á útliti Terra var hugsuð til að vera stílhrein og vekja bjartsýni enda hefur fyrirtækið náð miklum árangri á þeim tíma sem það hefur starfað.



Þar sem Terra hafði nýlega fengið uppfærða ásýnd var þetta kjörið tækifæri að flétta útfærslu afmælisefnisins áreynslulaust við nýja útlitið, og festa það þannig enn betur í sessi. Unnin var auglýsingaherferð sem birt var á ýmsum viðskiptamiðlum til að fagna afmælinu.