Springum út
Blómstrandi sumarherferð Símans

markaðsráðgjöf
grafísk hönnun
Eitt aðalsmerki Símans er fjölskrúðugt vöruúrval. Til að setja það á oddinn með skemmtilegum hætti þróuðum við hugmyndina um hinn sanna tilgang sumarsins — að prófa nýja hluti, njóta sín í botn og springa út. Og um leið vildum við reyna að hressa hnuggna landsmenn við yfir rigningasumarið mikla.






Hressandi mótvægi við sudda og súld
Lifandi blómahaf teygði sig yfir gjörvallt miðlalandslagið; svífandi, faðmandi og ilmandi á meðan baráttusöngur herferðarinnar bauð fólki að vera með á hóflega pönkaðan hátt í sjónvarpi og útvarpi.


