Hver drap Friðrik Dór?
Þáttaröðin sem leysti upp mörkin á milli raunveruleika og skáldskapar. Kynningarherferðin fór inn á gráa svæðið milli þess hefðbundna og óhefðbundna.


hugmyndavinna
grafísk hönnun
hreyfigrafík
framleiðsla
Söguhetjur þáttanna „Hver drap Frikka Dór?”, í Sjónvarpi Símans Premium, koma fram undir eigin nafni og ekki er ljóst hvort um heimildarmynd, spennu- eða gamanþátt er að ræða. Í PR hluta markaðsherferðar þáttanna var unnið með sömu bjögun á raunveruleikanum. Um nokkura vikna skeið hegðaði Villi Neto sér á sama undarlega hátt og í þáttununum, bæði í raunheimum og á samfélagsmiðlum, og þótti sumum af aðstandenda hans hans nóg um.


Heimagerð skilti, veggjakrot og falskar fréttir bættu lagi af dulúð við herferðina og Friðrik Dór lék sitt hlutverk með því að láta ekki ná í sig í lengri tíma.